Things have changed
já það er 1hvað búið að vera að gerast hjá mér undanfarið, ég keypti mér t.d. íbúð í síðustu viku :) hún er bara hérna í póstnr 112 og er ég afar sáttur við essi kaup, fæ samt ekki afhent fyrr en 1.okt og þá verður haldið gott innflutningspartý! réði mér svo líka einkaþjálfara í styrkingu fóta og sprengikrafti og er hann alveg að ganga fram af mér essi gæji sem heitir Matt og er Tékki, þið sem þekkið mig vitið að ég er ekki vanur að kvarta undan erfiðum æfinugm en shit mar :) samt það skilar sér bara þannig og verður gaman að sjá árangurinn eftir 14 vikur.... ég spilaði so í sparkvallamóti um helgina með Þorra, Andra Stein, Gumma Au og fleiri strákum, við unnum það og fengum utanlandsferð að eigin vali til Evrópu í vinning :) alger snilld!! annas gengur lífið bara sinn vanagang, ég er bara að vinna á daginn-æfa eftir það og tijilla eh á kvöldin :) svo hef ég aðeins verið að kíkja á lífið um helgar en ekkert mikið og er Kisi gersamlega að pakka mér í djammi þetta sumarið hehe þarnæstu helgi er svo Bryggjuhátíð á Drangsnesi og er planið að fjölmenna þangað, so far er allavega komnir ég -Bón -Dan og svo eru Kisi, Maggi frændi og Nonni spurningamerki, endielga kíkja verður geggjað :)
en ég er farinn í WC með Handsome Dan
later
Rico
p.s. Óli farðu að láta sjá þig í ræktinni :)
Magni er sko mitt lið, elegans, fegurð og persónutöfrar einkenna það lið, sérstaklega markmann liðsins.
Og til hamingju med sigurinn og midann til Evropu :D
Sjaumst bradum gamli!!
Kem heim eftir 8 daga og er ad deyja ur spenningi.....
Addi Gunn: gaman að fá komment frá þér fagmaður! já það á fátt eftir að stoðva Magna úr þessu og hey við verðum að fara saman á amk einn leik í sumar mar! en já hef heyrt að Magnamenn séu að lúkka vel, það er 50 % af essu hehe
Berglind: þakka þér kærlega fyrir kveðjuna :) reyndu nú að njóta síðustu dagana í fríinu vel ;) og takk fyrir að kalla mig 25 ára manninn alltaf gamli...........
Ertu buinn ad bua til aefingarplan fyrir mig? :) Nu eru bara 5 dagar i heimkomu...
Unglambid kvedur i bili....
