Fer Kisi til eyja??
var að skoða myndband hérna á youtube sem er alger snilld mar http://www.youtube.com/watch?v=3zfWhZ8_-JM verðið endilega að tjekka á essu hehe :) ég var alveg í kasti
Vængir unnu frækinn sigur í gær á Duffa eftir að hafa verið 2-1 undir þegar korter var eftir var sett í fluggírinn og við klárðum etta 5-2, ökklinn á mér í hakki eftir leikinn en það er nú ekki í fyrsta skipti :) Gummi Au opnaði reikninginn og setti 2, Helgi Frím. Jommi og ég so með eitt kvikindi á mann.
Svo eru bara tvær vikur af þessari blessaðri unglingavinnu og so kemur smá frí áður en ég byrja að vinna í Borgarskóla 13. ágúst. Sýnist líka á öllu að sólarkvótanum sé hér með lokið í höfuðborginni þetta sumarið og ætti mar kannski ekki að kvarta en auðvitað gerir maður það :)
Svo er ég sona að spá í eins og oft áður að taka pásu frá djamminu núna fram í nóvember og fara að æfa aðeins meira, spurning að standa við þa í þetta skiptið hehe, versta er að mig vantar einhvern góðan æfingafélaga sem er tilbúinn að koma á fullu inn í etta og ekki bara taka viku og viku :) þessu er ekki beint sérstaklega til ykkar Nonni, Danni og Óli, alveg skiljanlegt að það nenni ekki allir sona miklu en gæti verið að það leyndist einhver þarna ? og ef so er þá er bara að hafa samband :) en ég ætla að fara að reyna kannski að taka uppúr töskunum frá Mexícó ferðinni, ótrúlegt en satt er ekki allt komið hehe enda aðeins rúmir 2 mánuðir komnir! jamm sona er maður latur :) það breytist sjálfsagt þegar ég er kominn í mína eigin íbúð sem verður víst fyrr en á horfðist :) en ég ætla að halda áfram að spila football manger og reyna að gera eh uppbyggilegt :)
later
Rikki
ps það er ný könnun hérna, endilega kjósa ;)
